Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Fimmtudaginn 29. apríl 2004, kl. 21:01:07 (7242)

2004-04-29 21:01:07# 130. lþ. 106.13 fundur 786. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (afnám gjalda) frv. 51/2004, Frsm. meiri hluta GHj
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 130. lþ.

[21:01]

Frsm. meiri hluta sjútvn. (Guðjón Hjörleifsson):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nál. frá meiri hluta sjútvn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 92 24. maí 1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jón B. Jónasson frá sjávarútvegsráðuneyti. Þá bárust nefndinni umsagnir frá Hafrannsóknastofnuninni, Samtökum uppboðsmarkaða, Byggðastofnun, Félagi dagabátaeigenda, Alþýðusambandi Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Landssambandi íslenskra útvegsmanna og Landssambandi smábátaeigenda.

Í frumvarpinu er lagt til að gjöld sem eigendur skipa hafa greitt í Þróunarsjóð sjávarútvegsins skv. 4. og 6. gr. gildandi laga verði felld niður frá 1. september nk.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nál. rita auk mín hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðjón A. Kristjánsson, með fyrirvara, Ísólfur Gylfi Pálmason og Guðjón Guðmundsson.

Í athugasemdum við lagafrv. þetta segir, með leyfi forseta:

,,Breytingar þær sem hér eru lagðar til eiga rætur að rekja til þess að á árinu 2002 samþykkti Alþingi breytingu á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, sem felur í sér að frá og með 1. september 2004 verður lagt sérstakt veiðigjald á eigendur skipa fyrir úthlutaðar veiðiheimildir eða landaðan afla þegar ekki er um úthlutun að ræða. Jafnframt var þess getið í greinargerð með frumvarpinu að þegar til greiðslu veiðigjalds kæmi væri við það miðað að niður féllu gjöld sem útgerðin greiddi og voru áætluð samkvæmt fjárlögum ársins 2002 um 850 millj. kr., þ.e. veiðieftirlitsgjald, 226,5 millj. kr., og þróunarsjóðsgjald, 621 millj. kr. Með frumvarpi þessu er lagt til að gjöld sem eigendur skipa hafa greitt í Þróunarsjóð sjávarútvegsins skv. 4. og 6. gr. laganna verði felld niður frá 1. september nk. Samkvæmt áætluðum efnahags- og rekstursreikningi þróunarsjóðs fyrir árið 2003 var hrein eign sjóðsins um 318 millj. kr. í árslok 2003 og var það í fyrsta skipti frá sjóðsstofnun sem sjóðurinn sýnir jákvæðan höfuðstól. Gangi áætlanir þróunarsjóðs fyrir árin 2003--2009 eftir má gera ráð fyrir að hrein eign sjóðsins verði um 370 millj. kr. í árslok 2009 er starfstíma hans lýkur samkvæmt lögunum.``

Frú forseti. Töluvert var rætt um það í nefndinni hvort hægt væri að nálgast útreikninga frá sjútvrn. um hve miklu veiðigjaldið mundi skila og hvort það yrði meira en þau gjöld sem verða felld niður, þ.e. veiðieftirlitsgjald og þróunarsjóðsgjald. Það liggja ekki fyrir útreikningar en svarið frá ráðuneytinu gaf til kynna að þar væru töluvert hærri tölur en innheimtar eru í dag. Þetta er náttúrlega líka tengt hagnaði fyrirtækja. Miðað við umræðuna mun ég reyna að nálgast þær tölur og við gætum fengið þær inn í sjútvn. á milli umræðna. Ég vona að það muni ganga eftir.