Útlendingar

Föstudaginn 30. apríl 2004, kl. 13:59:21 (7307)

2004-04-30 13:59:21# 130. lþ. 107.1 fundur 749. mál: #A útlendingar# (aðlögunarheimildir stækkunarsamnings ESB og EES o.fl.) frv. 20/2004, SKK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 107. fundur, 130. lþ.

[13:59]

Sigurður Kári Kristjánsson (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. 1. þm. Reykv. n. hlý orð í minn garð, en vil benda honum á að við meðferð málsins tók hv. allshn. einmitt til skoðunar umsögn Persónuverndar sérstaklega hvað þetta atriði varðar og gerði hana a.m.k. að hluta til að sínu. Ef hv. þm. mundi lesa nál. a.m.k. einu sinni í gegn sæi hann að jafnvel sá þingmaður sem hér stendur tók að hluta undir þau atriði sem fram komu í þeirri umsögn.