Forseti (Halldór Blöndal):
Ég vil af þessu tilefni segja að formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar óskuðu eftir því að nefndin kæmi aftur saman. Formaður nefndarinnar hefur ljúfmannlega við því orðið þannig að ég sé satt að segja ekki að hverju athugasemdir hv. þm. við fundarstjórn forseta beinast.
Ég vil í annan stað staðfesta það sem ég hef áður sagt og sagði við formenn þingflokka. Það er skilyrðislaus réttur þingmanna að þeim er heimilt að gefa út nefndarálit ef þeim svo sýnist og ef þeim þykir það rétt, hvort sem þeir eru í meiri hluta eða minni hluta. Getur hvorki meiri né minni hluti nefndar takmarkað athafnafrelsi þingmanna að þessu leyti, enda lýtur þingið ákvæðum stjórnarskrár og einn þingmaður getur með engum hætti skert tjáningarfrelsi annars þingmanns.