Útvarpslög og samkeppnislög

Mánudaginn 03. maí 2004, kl. 17:31:11 (7387)

2004-05-03 17:31:11# 130. lþ. 108.2 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 130. lþ.

[17:31]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. verður að gera það upp við sjálfan sig hvernig hann skilur ræðu mína. Ég talaði alveg skýrt um það hvers vegna ég er fylgjandi frv. og ég ætla ekki að fara að endurtaka það hér fyrir hv. þm. Ég talaði gersamlega skýrt um það hver væru prinsippmálin í frv. og ég tel mig ekki þurfa að endurtaka þær skýringar. Það er samþjöppun í eignarhaldi á fjölmiðlum og ég vona að það komist til skila til hv. þm.