Útvarpslög og samkeppnislög

Mánudaginn 03. maí 2004, kl. 17:42:59 (7399)

2004-05-03 17:42:59# 130. lþ. 108.2 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 130. lþ.

[17:42]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég endurtek að ég vona að þau fjölmiðlafyrirtæki sem fyrir eru í landinu geti það. Gerðar hafa verið miklar breytingar á 60 dögum, en hins vegar ætla ég ekki að leggja neinn dóm á það í smáatriðum. Það er mál sem verður að sjálfsögðu rætt en það hefur verið leyst úr margri flækju á 60 dögum, það er alveg ljóst. Það er nokkuð langur tími í viðskiptum.