Útvarpslög og samkeppnislög

Þriðjudaginn 04. maí 2004, kl. 10:36:03 (7558)

2004-05-04 10:36:03# 130. lþ. 109.1 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, GAK (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 130. lþ.

[10:36]

Guðjón A. Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Við afgreiðslu þessa máls nú og vísun málsins áfram til nefndar er treyst á það að málsmeðferð verði vönduð og að ekki verði sjálfgefið að málinu ljúki á þessu vori ef ekki næst um það góð og eðlileg sátt. Í þeirri trú munum við styðja það að málið gangi áfram.