Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Þriðjudaginn 04. maí 2004, kl. 18:45:28 (7627)

2004-05-04 18:45:28# 130. lþ. 109.3 fundur 786. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (afnám gjalda) frv. 51/2004, Frsm. meiri hluta GHj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 130. lþ.

[18:45]

Frsm. meiri hluta sjútvn. (Guðjón Hjörleifsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að lögin eru það skýr að eignir Þróunarsjóðs eiga að fara í hafrannsóknir og ég sé ekki að komnar séu neinar breytingar á því. Menn hafa einnig rætt um að ráðstafa þeim í varðveislu gamalla skipa og þar er tillaga hjá hæstv. menntmrh. Ég tel því ekki tímabært að taka þá umræðu meðan málið er í farvegi.