Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Virðulegur forseti. Gott og vel. Við skulum sleppa því í þessari umræðu að ræða embættisfærslu hæstv. dómsmrh. í málinu og taka um það umræðu í þinginu í næstu viku. Það er sjálfsagt að gera það og fara þá mjög gaumgæfilega yfir álit umboðsmanns Alþingis, álit sem ég tel að skipti okkur þingmenn miklu máli þó svo að hæstv. dómsmrh. tali um það eins og hvert annað lögfræðiálit í hádegisfréttum útvarpsins í dag.
Það sem við hins vegar þurfum að ræða í dag og er ástæða þess að farið er fram á umræðu um stjórn þingsins er að umboðsmaður Alþingis beinir ákveðnum tilmælum til Alþingis að skoða hvernig málsmeðferð er við skipan dómara í Hæstarétt og hvort ekki sé ástæða til að styrkja meðferð þeirra mála þannig að það tryggi aukið sjálfstæði Hæstaréttar. Það er ástæða til að vekja athygli hv. þm. á þessu vegna þess að nú nýverið var einmitt viðtal við aðstoðarmann dómsmrh. í fréttum útvarpsins þar sem kemur fram að dómstólalög séu í endurskoðun í dómsmrn. og þar verði hugsanlega gerðar breytingar á lögum sem snerta Hæstarétt. Hvaða breytingar var hann að tala um sem hann taldi að mætti skoða eins og aðrar? Jú, með leyfi forseta:
,,Þá segist hann hafa heyrt þá hugmynd nefnda að ráðherra ætti að skipa forseta réttarins og telur það geta verið rökrétt og megi skoða eins og annað.``
Að ráðherra skipi forseta réttarins svo ráðherra hafi betri tök á Hæstarétti en hann hefur núna. Ég segi nei, virðulegi forseti. Þetta eigum við ekki að skoða og það er Alþingis að gjalda varhuga við hugmyndum sem þarna eru á ferðinni.