Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Frú forseti. Vegna fyrirspurnar um hvort ekki sé mögulegt að gera tvíhliða fríverslunarsamning við Kanada tel ég að það leiði ekki til lausnar á þessu máli. Við höfum sett afskaplega mikið í þennan undirbúning, bæði af okkar hálfu og líka af hálfu Kanada. Ég trúi því að hægt verði að leysa það. Við megum ekki gleyma því að það hefur verið ófrávíkjanleg grundvallarregla hjá EFTA-ríkjunum að engar iðnaðarvörur væru undanskildar. Því skyldum við þá undanskilja slíkar vörur í tvíhliða samningi? Ég tel að það komi ekki til greina.
Við höfum haft mjög gott samstarf við hin EFTA-ríkin í öllum þessum málum og ég fullyrði að það er þess vegna sem Ísland er almennt með fríverslunarsamninga við ýmis ríki. Það er ekki sami áhuginn á að gera fríverslunarsamninga við lítil ríki eins og stærri. Efnahagskerfi EFTA-ríkjanna er svipað og efnahagskerfi Kanada og það er mjög stórt mál fyrir okkur og öll EFTA-ríkin að varðveita þá samstöðu sem er meðal þeirra. Ég tel að svo sé jafnframt í þessu máli. Við verðum að reyna að halda áfram að leysa það og ég trúi að það muni takast þó að það hafi valdið miklum vonbrigðum hvað það hefur tekið langan tíma.