Dagskrá næsta þingfundar

Mánudaginn 10. maí 2004, kl. 23:00:35 (7776)

2004-05-10 23:00:35# 130. lþ. 111.94 fundur 544#B dagskrá næsta þingfundar# (um fundarstjórn), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 111. fundur, 130. lþ.

[23:00]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil biðja hv. þm. að halda sig við það að skamma hæstv. forseta en ekki einstaka þingmenn þegar verið er að gera athugasemd við fundarstjórn forseta.

Annars vil ég láta þess getið að ég minntist sérstaklega á það á fundi með formönnum þingflokka í dag að þess mætti vænta að nál. kæmi varðandi réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og minntist einnig á útvarpslög og samkeppnislög.