Forseti (Halldór Blöndal):
Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að forseti ungverska þingsins, frú Katalin Szili, er stödd á þingpöllum ásamt fylgdarliði. Forsetinn og fylgdarlið hennar eru stödd hér á landi í boði Alþingis.
Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta ungverska þingsins og fylgdarlið velkomin í Alþingishúsið og vænti þess að heimsókn þeirra til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru á milli landanna.
Alþingi vottar forseta ungverska þingsins og ungversku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]