Kristján L. Möller:
Herra forseti. Það er líka vert að hafa það í huga að hv. allshn. vísaði málinu til efh.- og viðskn. og menntmn. og óskaði eftir umsögn þeirra. Það þarf ekki að ræða um það.
Mér þótti ákaflega merkileg áðan sú kennslustund í þingsköpum sem hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson fór með í ræðustól gagnvart forseta Alþingis. Hann las hér upp grein sem er margbúið að lesa upp og var lesin oft upp þegar verið var að ræða útlendingalög. Ég fór aðeins að hugleiða eftir á hvort hæstv. forseti skildi ekki greinina eða hvort hann hefði ekki áttað sig á því að viðbótin við 27. gr. kemur með lögum nr. 102/1993. Það kann að stafa af einhverju slíku vegna þess að hæstv. forseti er mjög fróður um störf þingsins. Ég hef oft orðið þess áskynja að hér er rætt um ýmislegt sem gerðist á árum áður. Ég hef hugleitt að það var farið miklu aftar en til 1993. Með leyfi forseta er þessi málsgrein svohljóðandi:
,,Ef nefndarmaður gerir tillögu um að athugun máls sé hætt og það afgreitt frá nefndinni er formanni skylt að láta ganga atkvæði um þá tillögu á þeim fundi sem hún er borin fram. Tillagan telst því aðeins samþykkt að meiri hluti nefndarmanna greiði henni atkvæði.``
Þetta gerðist í efh.- og viðskn. í morgun. Hv. þm. Pétur Blöndal lagði fram tillöguna, það gengu atkvæði og hún var kolfelld, fékk aðeins tvö atkvæði, herra forseti. Það var þó aðeins skárra en í útlendingafrumvarpinu, hún fékk bara eitt þar.
Sú kennslustund sem hér fór fram áðan, eins og ég vitnaði til, hlýtur að bera þann árangur, virðulegi forseti, að forseti fresti nú fundi vegna þess að nú er búið að eyða hér klukkutíma í umræðu um störf þingsins, fundarstjórn forseta og þessi vitleysisvinnubrögð, vil ég leyfa mér að kalla, sem hefði verið betur varið í efh.- og viðskn. Forstjóri Samkeppnisstofnunar hefði t.d. fengið að klára það orð sem hann var byrjaður á þegar fundi var frestað. Þetta er grundvallaratriði.
Virðulegi forseti. Ég spyr hvort ekki sé nú komið á daginn að besta tillagan um framkvæmd þingstarfa hér á fjölmörgum fundum með hæstv. forseta í gær hafi komið frá okkur stjórnarandstæðingum, þ.e. tillaga um að hætta eigi síðar en kl. 4, sem forseti féllst á en ekki fyrr en kl. rúmlega 3. Þá var búið að eyða mörgum tímum í að ræða um störf þingsins og fundarstjórn forseta. Það hefði verið meiri myndarbragur á því, virðulegi forseti, að tilkynna lok fundar kl. 4. Þá hefði mátt spara þá tíma og nota í efnislega umræðu um málið.
Nú er hæstv. forseti búinn að eyða klukkutíma, eins og fram hefur komið. Var ekki besta tillagan sú sem kom fram í gær um að halda áfram klukkan 13.30? Virðulegi forseti. Ég vil allt gera til að létta þér störf þingsins og ég er tilbúinn til að koma með fleiri góðar tillögur um hvernig málum skuli haldið fram. Það er ekkert mál að láta vita og við skulum koma til fundar hvenær sem er til að leiðbeina þér um hvernig best sé að keyra hér áfram þingið.