Afgreiðsla fjölmiðlafrumvarps

Miðvikudaginn 12. maí 2004, kl. 11:38:36 (7997)

2004-05-12 11:38:36# 130. lþ. 113.92 fundur 552#B afgreiðsla fjölmiðlafrumvarps# (um fundarstjórn), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 113. fundur, 130. lþ.

[11:38]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil áminna hv. þingmann um að tala til forseta Alþingis með viðeigandi hætti.

Ég vil einnig minna á að ég féllst á það að ræða við formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar klukkan 12 á miðnætti og beið þess niðri í forsetaherbergi að þeir kæmu til fundar við mig. Mig minnir að þeir hafi ekki sýnt sig fyrr en kl. hálftvö.