Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Það er auðvitað fagnaðarefni að Framsfl. sé kominn í leitirnar og ekki er verra að fá svona kostulega ræðu eins og hv. þm. Hjálmar Árnason flutti hér, langan og mikinn reiðiþrunginn lestur um hina skaðlegu samþjöppun í viðskiptalífinu hist og her, í lyfjadreifingu, smásöluverslun, fjármálaþjónustu og hvað það var sem hv. þm. nefndi, flokksbróðir hæstv. viðskrh. Valgerðar Sverrisdóttur. Hv. þm. var að lýsa afleiðingum stjórnarstefnunnar undanfarin ár, þeirri samþjöppun í viðskiptalífinu sem orðið hefur undir handarjaðri Framsfl. Með því að menn skrifi hins vegar ekki upp á hin fráleitu vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í þessu fjölmiðlamáli eiga menn að vera orðnir ábyrgir fyrir öllu hinu, en ekki ríkisstjórnin, ekki viðskrh., er það? Nei, nei, nei. Þvílíkir loftfimleikar í röksemdafærslu hjá hv. þingmanni.
Það er auðvitað Framsfl. sem ber meiri ábyrgð á öllum þessum ósóma sem hv. þm. var að lýsa en nokkur annar flokkur í landinu.