Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Frú forseti. Hæstv. forsrh. spyr eftir mínum málefnalega málflutningi. Það vill svo til að ég hélt nánast klukkutíma ræðu áðan þar sem ég fór lið fyrir lið yfir stefnu Samf. Hæstv. forsrh. leyfði sér hins vegar að koma hér í ræðu áðan sem var full af dylgjum. Hæstv. forsrh. sagði: Ja, það mun nú koma í ljós hvernig stendur á afstöðu Samf. Um hvað var hæstv. forsrh. að dylgja? Hefur Davíð Oddsson forsrh. virkilega ekki kjark baráttumannsins sem hann hafði áður? Þorir hann ekki að koma hingað og segja það sem hann er að dylgja um? Hvar er hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon? Eftir allt saman kemur í ljós að hann hafði rétt fyrir sér. Kjarkur forsrh. er brostinn í þessu máli. Dylgjur eru það eina sem hann hefur fram að færa til andsvara við Samf. Ekkert annað. Hvers konar reisn er nú þetta?
(Forseti (SP): Forseti vill áminna hv. þm. að gæta þess að ávarpa forsrh. með tilhlýðilegum hætti.)