Sigurjón Þórðarson (andsvar):
Frú forseti. Fiskveiðistjórn á að snúast um fiskvernd. Það er nokkuð ljóst að þeir 300 bátar sem um er að ræða hér ógna ekki fiskstofnum landsins. Þess vegna er óskiljanlegt að verið sé að þvinga þá inn í kvótakerfi. Ég vil ekki segja að þetta sé neitt val. Ég tel að hér sé verið að nauðga þessum bátum inn í kvótakerfið vegna þess að þeim eru settir ákveðnir afarkostir.
En mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra um 1. gr. laga um stjórn fiskveiða. Þar segir, með leyfi forseta:
,,Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu.``
Ef þetta frumvarp verður að lögum þá mun það koma mjög illa við Norðvesturkjördæmið. Það hefur komið ítrekað fram að mestum hluta aflans eða fjórum fimmtu hluta aflans er landað í Norðvesturkjördæminu. Nú hafa verið umræður á þingi um slæma stöðu Norðvesturkjördæmisins. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort það hafi verið skoðað hvernig þetta komi við Norðvesturkjördæmið. Það var í fréttum að Guðmundur Halldórsson á Bolungarvík taldi að þetta frumvarp væri bein aðför að Vestfjörðum. Ég hlýt að ætla að hæstv. ráðherra hafi farið eftir markmiðum laganna og skoðað byggðaáhrif þessa frumvarps. Því væri fróðlegt að fá að heyra svör hans um það hvernig hann telji að þetta snúi að Norðvesturkjördæminu.