Kristján L. Möller (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. sjávarútvegsáðherra fyrir þetta svar. Ég er hins vegar ekki alveg tilbúinn að kaupa þessa skýringu þó að ég skilji vel að einhverja dagsetningu verði að setja þannig að menn rjúki ekki upp til handa og fóta eftir að frumvarpið er komið fram.
Mér finnst að ég hafi heyrt að tilkynning til Landssambands smábátaútgerðarmanna um þetta frumvarp hafi komið fram 7. maí. Frumvarpið var hins vegar lagt fram 14. maí. Það er spurningin. Ég er alls ekki talsmaður fyrir því að menn geti farið eitthvað á svig við þetta með því henda að afla milli báta úr einu kerfi yfir í annað til að fá sér meiri heimild. Mér finnst ekki heldur að menn geti rokið upp til handa og fóta og gert þetta núna. En mér finnst hrammurinn koma fullharkalega í höfuðið á þeim sem sannarlega geta lagt fram kannski reikninga, smíðalýsingar eða annað fyrir bát sem verið er að smíða núna og þeim verður svo refsað.
Virðulegi forseti. Ég tel mig vera að tala skýrt og ég er ekki að tala um að menn geti farið að spila á kerfið. Það á aldrei að eiga sér stað. En til eru sannarlega þeir sem munu heldur betur fá ríkishramminn í hausinn miðað við þetta.