Magnús Þór Hafsteinsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég vil fá að þakka hv. þm. Kristni H. Gunnarssyni fyrir mjög góða, skýra og málefnalega ræðu. Hann varpaði ljósi á ýmsa hluti sem ég hygg að margir hafi kannski ekki alveg fyllilega velt nógu vel fyrir sér áður en þeir settust niður og fóru að semja frv.
Mig langar bara til að fá að heyra það alveg skýrt frá hv. þm. hvort hann geti hugsað sér að styðja eitthvað í frv. eða styður hann enn þá hugmyndina um 23 daga gólf eins og mig minnir að hann hafi reyndar lýst yfir á fjölmennum fundi sem haldinn var á Ísafirði þann 15. september í haust?