Sigurjón Þórðarson (andsvar):
Frú forseti. Þetta svar stangast á við það sem hæstv. sjávarútvegsráðherra sagði. Hann sagði að þetta muni hækka eiginfjárstöðu fyrirtækjanna og það verður mun erfiðara að komast inn í greinina. Telur fulltrúi Sjálfstæðisflokksins það ekki vera alvörumál? Ég hélt að þetta kerfi væri nógu lokað. Ég hefði talið að menn ættu að reyna að tryggja nýliðun í sjávarútvegi. Hefur formaður sjávarútvegsnefndar engar áhyggjur af því?