Magnús Þór Hafsteinsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ástæðan fyrir því að ekki hefur náðst sátt er einfaldlega sú að þessum litla flota, þessum svokallaða dagaflota sem er aðeins að veiða í kringum 10 þúsund tonn á ári, hafa ekki verið tryggð rétt rammaskilyrði, stöðug rammaskilyrði og óvissu um framtíð hans eytt. Um það snýst málið.
Svo er annað. Umsagnir þær sem hafa borist eru mjög samhljóma frá trillukörlum allt í kringum landið. Ályktanir Landssambands smábátaeigenda eru líka mjög samhljóma. Er hv. þm. Guðjón Hjörleifsson að fullyrða að félög smábátaeigenda allt í kringum landið, forsvarsmenn þeirra og síðan forsvarsmenn Landssambands smábátaeigenda, séu ekki að vinna í umboði félagsmanna sinna, vinna þau störf og gæta þeirra hagsmuna sem þeir voru kosnir til? Hvers konar málflutningur er þetta?