Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Þriðjudaginn 18. maí 2004, kl. 10:27:06 (8522)

2004-05-18 10:27:06# 130. lþ. 119.4 fundur 786. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (afnám gjalda) frv. 51/2004, JGunn (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 119. fundur, 130. lþ.

[10:27]

Jón Gunnarsson:

Herra forseti. Í tilefni af orðum hv. þm. Guðjóns Hjörleifssonar rétt áðan vil ég taka fram að ég hef ekki fengið minnisblaðið sem hann var að vitna til. Ég veit hins vegar að í gærkvöldi sagði hann mér að hann væri búinn að afla þessara upplýsinga en hefði ekki náð að koma þeim til okkar og því sent þær til mín í tölvupósti.

Nú háttar þannig til að við vorum hér að störfum í Alþingi til til hálftvö í gærkvöldi. Ég var kominn heim til mín kl. hálftvö í gærkvöldi og mættur á fund hjá sjútvn. kl. 8.15. Ég hef því ekki getað kynnt mé tölvupóst frá hv. þm. Guðjóni Hjörleifssyni. Það er með ólíkindum að ætla að halda því fram að við séum búnir að fá þessar upplýsingar. Ég kallaði eftir þeim við 3. umr. í gær og fékk þær ekki.