Almannatryggingar

Þriðjudaginn 18. maí 2004, kl. 10:31:21 (8524)

2004-05-18 10:31:21# 130. lþ. 119.9 fundur 966. mál: #A almannatryggingar# (meðlög, EES-reglur) frv. 78/2004, Frsm. JBjart (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 119. fundur, 130. lþ.

[10:31]

Frsm. heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar. Þetta er frv. sem hv. heilbr.- og trn. flytur. Aðdragandi þessa máls er töluvert flókinn og mér finnst rétt að gera grein fyrir honum.

Eins og fram kemur í greinargerðinni voru samþykkt ný barnalög á Alþingi 2003 sem tóku gildi 1. nóvember sama ár. Með lögunum voru gerðar breytingar á ákvæðum er varða milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur og breytingarnar hafa haft áhrif á framkvæmd stofnunarinnar. Nýju barnalögin mæla m.a. fyrir um að skilyrði fyrirframgreiðslu meðlags frá Tryggingastofnun ríkisins sé að rétthafi greiðslna sé búsettur hér á landi. Því hefur Tryggingastofnun ríkisins frá gildistökunni hætt að greiða meðlag til þeirra meðlagsþega sem búsettir eru erlendis. Eldri barnalög gerðu ráð fyrir að meðlag væri greitt rétthafa greiðslna skv. IV. og IX. kafla barnalaga ,,sem ætti framfærslurétt hér á landi``. Það hafði um langt árabil verið túlkað svo að rétt til greiðslu ættu þeir sem væru búsettir hér á landi og auk þess íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis ef meðlagsgreiðandi var búsettur hér.

Ákvæði nýju barnalaganna um að rétthafi meðlagsgreiðslna frá Tryggingastofnun skuli vera búsettur hér á landi hefur að geyma sömu meginreglu og almannatryggingalöggjöfin, þ.e. að almenna reglan er sú að réttur til greiðslna byggist á búsetu og bætur séu eingöngu greiddar þegar móttakandi er búsettur á Íslandi. Frá þeirri meginreglu er svo vikið þegar bætur eiga í hlut ef um það hefur verið samið í samningum Íslands við önnur ríki um almannatryggingar. Í því tilviki er aðallega átt við EES-samninginn, en samkvæmt almannatryggingaákvæðum hans heyra launþegar fyrst og fremst undir löggjöf landsins þar sem þeir vinna, þ.e. óháð búsetu. Áunnin uppsöfnuð réttindi, t.d. lífeyrisréttindi, skal einnig greiða út, óháð því í hvaða EES-landi móttakandinn er búsettur.

Þegar Tryggingastofnun ríkisins hefur milligöngu um meðlag (fyrirframgreiðsla meðlags) sem síðan er sent til innheimtu hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga, hefur það aldrei verið talið til bóta almannatrygginga. Gilda sérákvæði um greiðslurnar í barnalögum og almannatryggingalögum og þá gilda almenn ákvæði almannatryggingalaga um sömu atriði ekki. Fyrirframgreiðsla meðlags er ekki heldur í upptalningu laganna á því hvað teljist bætur almannatrygginga.

Í tveimur málum fyrir Evrópudómstólnum var deilt um meðlagsgreiðslur. Í dómunum var m.a. komist að þeirri niðurstöðu að milliganga tryggingastofnana um greiðslu meðlags (fyrirframgreiðsla meðlags) í þeim löndum þar sem hún væri fyrir hendi væri bætur almannatrygginga og félli slík greiðsla undir efnislegt gildissvið ESB-reglugerðar nr. 1408/71 um almannatryggingar. Niðurstaða dómstólsins felur í sér túlkun á efnislegu gildissviði ESB-reglugerðar nr. 1408/71 þannig að reglugerðin samkvæmt þessari túlkun tekur nú til fleiri greiðslna en áður. Þar sem þessi reglugerð er hluti af EES-samningnum, hefur þetta áhrif hér á landi.

Tryggingastofnun ríkisins hefur fylgt almannatryggingaákvæðum EES-samningsins þegar um flutning tryggðra einstaklinga sem heyra undir EES-reglurnar til og frá Íslandi er að ræða en þó aðeins við bótagreiðslur sem samningurinn tekur til. Þar sem fyrirframgreiðsla meðlags hefur ekki verið talin til bóta almannatrygginga hefur EES-reglunum ekki verið beitt í þeim tilvikum.

Önnur EES-ríki sem eru aðilar að samningnum hafa nú þegar breytt framkvæmd hjá sér í samræmi við dómana og hefur það haft áhrif á störf Tryggingastofnunar og réttindi einstaklinga. Þau ríki eru byrjuð að senda umsóknir um fyrirframgreiðslu meðlags til Tryggingastofnunar í þeim tilvikum þegar EES-reglurnar kveða á um að milliganga sé hjá Tryggingastofnun þar sem meðlagsskyldur er í vinnu á Íslandi. Málin eru óafgreidd sem veldur viðkomandi einstaklingum vandræðum. Tryggingastofnun telur að þar sem meðlag sem stofnunin hefur milligöngu um sé ekki bætur samkvæmt almannatryggingalögunum okkar sé ekki heimilt að greiða meðlag úr landi eða fylgja EES-reglunum að öðru leyti nema lögunum verði breytt.

Í frumvarpinu er ekki gerð tillaga um að skilgreina meðlagsgreiðslur sem Tryggingastofnun ríkisins hefur milligöngu um sem bætur almannatrygginga eins og Evrópudómstóllinn hefur gert. Slíkt gæti haft ófyrirséð áhrif í för með sér. Þess vegna er með þessu frumvarpi lögð til breyting á 64. gr. laga nr. 117/1993, þar sem kveðið er á um heimild ríkisstjórnar til að semja við erlend ríki um gagnkvæman rétt til almannatrygginga, samlagningu tryggingartímabila og greiðslur bóta úr landi við búsetu í öðru samningsríki. Lagt er til að heimilað verði að semja enn fremur um fyrirframgreiðslu meðlags milli samningsríkja eins og um bætur almannatrygginga væri að ræða.

Með frumvarpinu er heimilað að láta ákvæði milliríkjasamninga, t.d. EES-samningsins, taka til fyrirframgreiðslu meðlags ef svo ber undir og heimila á þann hátt Tryggingastofnun ríkisins að hefja afgreiðslu EES-umsókna um meðlagsgreiðslur. Einnig er tekið mið af væntanlegum breytingum en talið er að fljótlega --- það er kannski þetta sem skiptir verulegu máli varðandi þetta mál--- eða á næstu árum verði reynt að snúa við þessari nýju reglu sem Evrópudómstóllinn setti með því að undanskilja fyrirframgreiðslur meðlags ákvæðum ESB-reglugerðar nr. 1408/71. Talið er að frumvarpið auðveldi Tryggingastofnun ríkisins, ef þessu verður snúið við, að bregðast við því þegar þar að kemur.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að það sé meginregla að sá sem á rétt á meðlagsgreiðslu frá Tryggingastofnun verði að vera búsettur hér á landi. Þó verði fylgt reglum EES-samningsins þegar þær eiga við og enn fremur verði heimilt að setja sérstakar undantekningarreglur í reglugerð þegar milliríkjasamningar eiga ekki við, m.a. til hagsbóta fyrir íslenska ríkisborgara sem búsettir eru utan EES-svæðisins. Í því tilviki hafa gjarnan verið nefndir íslenskir námsmenn sem stunda nám erlendis og fyrir utan EES-svæði.

Fyrir gildistöku nýju barnalaganna greiddi Tryggingastofnun ríkisins meðlög úr landi til Íslendinga sem búsettir voru erlendis án skilyrða. Þær greiðslur voru stöðvaðar 1. nóvember 2003. Stór hluti þeirra sem áður fengu meðlagsgreiðslur fyrir milligöngu stofnunarinnar mun nú þegar hafa fengið meðlagsgreiðslur í búsetulandi sínu fyrir milligöngu tryggingastofnana í viðkomandi landi. Flestir þeirra búa á Norðurlöndunum. Milliganga getur eftir atvikum skapað endurgreiðslukröfu á hendur meðlagsgreiðanda.

Frumvarpið gerir Tryggingastofnun kleift að taka til afgreiðslu mál þeirra einstaklinga sem hafa ekki fengið greiðslu í búsetulandi sínu. Það eru þá aðallega þau tilvik þar sem talið er að Tryggingastofnun beri að hafa milligöngu um greiðslu meðlags, t.d. vegna þess að meðlagsskyldur er búsettur og vinnur hér á landi. Gert er ráð fyrir að meðlagsgreiðslur Tryggingastofnunar verði innheimtar hjá viðkomandi meðlagsgreiðanda.

Eins og áður mun Tryggingastofnun fyrirframgreiða meðlag í ákveðnum tilvikum, á grundvelli erlends meðlagsúrskurðar, til rétthafa greiðslna og barna sem búsett eru hér á landi þar sem meðlagsskyldur er búsettur erlendis. Í þeim tilvikum verður meðlagsgreiðsla Tryggingastofnunar einnig innheimt hjá hinum meðlagsskylda.

Að gefnu tilefni er vert að taka það fram að ekki er hægt að leysa framangreind vandamál með því að breyta barnalögum til fyrra horfs eins og þau voru fyrir gildistöku nýju laganna í nóvember 2003. Eftir sem áður þarf að bregðast við áðurnefndum dómum Evrópudómstólsins því að samningsríki, sérstaklega á Norðurlöndunum, eru þegar farin að fylgja EES-reglunum við afgreiðslu umsókna um fyrirframgreiðslu meðlags.

Hv. heilbr.- og trn. óskaði eftir upplýsingum frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu um hvort samþykkt frumvarpsins mundi hafa í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð, en málið er flutt að höfðu samráði við ráðuneytið. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu, sem hafði samráð við fjármálaráðuneytið, mun samþykkt frumvarpsins ekki fela í sér kostnaðarauka. Gert er ráð fyrir að Tryggingastofnun verði eingöngu milligönguaðili um fyrirframgreiðslu meðlags eins og verið hefur og þar til bær yfirvöld innheimti síðan meðlagið hjá viðkomandi foreldri.

Herra forseti. Ég hef gert grein fyrir því frv. sem ég mæli hér fyrir af hálfu hv. heilbr.- og trn. Þar sem nefndin flytur málið sjálf er að sjálfsögðu ekki mælst til þess að frv. verði vísað til nefndarinnar að lokinni þessari umræðu.