Útvarpslög og samkeppnislög

Miðvikudaginn 19. maí 2004, kl. 11:04:38 (8649)

2004-05-19 11:04:38# 130. lþ. 120.19 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, Frsm. meiri hluta BjarnB
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur, 130. lþ.

[11:04]

Frsm. meiri hluta allshn. (Bjarni Benediktsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir brtt. frá meiri hluta allshn. við frv. til laga um breytingu á útvarpslögum og samkeppnislögum. Þessar tillögur er að finna í þremur töluliðum á þskj. 1723 og vísa ég til skjalsins um efni þessara brtt. Ég ætla aðeins að fylgja úr hlaði greinargerð sem þessum tillögum fylgja.

Fyrsta brtt. felur í sér að hámarkseign sama aðila (fyrirtækis eða fyrirtækjasamstæðu) í hverju útvarpsfyrirtæki verði hækkuð úr 25% í 35%. Með því er leitast við að koma betur til móts við það sjónarmið að rekstrargrundvelli þessara fyrirtækja verði ekki raskað meira en eðlilegt getur talist í þágu markmiðsins um fjölbreytni í fjölmiðlun.

Önnur brtt. er á hinn bóginn fólgin í því að lögin öðlast gildi við birtingu. Til að gæta ýtrasta öryggis með tilliti til verndar þeirra eigna- og atvinnuréttinda sem varin eru af 72. gr. stjórnarskrárinnar er ekki lengur gert ráð fyrir því að allir leyfishafar þurfi að tveimur árum liðnum að hafa lagað sig að hinum breyttu lögum, heldur renna núgildandi útvarpsleyfi út samkvæmt efni sínu og við veitingu nýrra leyfa gilda hin breyttu lög.

Loks er þessu til viðbótar gert ráð fyrir að þeir aðilar sem eru með útvarpsleyfi sem renna út á næstu tveimur árum geti fengið framlengingu þeirra leyfa til 1. júní 2006 þótt þeir uppfylli ekki skilyrði 1. gr. frv. Er þessi breyting í samræmi við þann tveggja ára aðlögunartíma sem gert var ráð fyrir í brtt. sem samþykktar voru við 2. umr. málsins. Að mati meiri hluta nefndarinnar er með þessu komið til móts við ýtrustu sjónarmið um meðalhóf í þessu efni þótt almennt verði ekki talið að stjórnskipuleg sjónarmið komi í veg fyrir að löggjafinn geti breytt skilyrðum tímabundinna leyfa þannig að leyfishafar verði að uppfylla ný lagaskilyrði þegar þeir leita eftir framlengingu.

Að öðru leyti held ég að segja megi að þau atriði sem hér eru gerðar brtt. við hafi fengið talsvert ítarlega umfjöllun á fyrri stigum málsins. Að því leytinu til tel ég að þær skýri sig að mestu leyti sjálfar.