Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Virðulegi forseti. Hvernig er hægt að halda því fram að menn séu að gefa Hæstarétti ráð þegar þeir fjalla um niðurstöðu hans eftir að hún liggur fyrir? Það er enginn að gefa Hæstarétti ráð um það hvernig hann eigi að dæma. Það er verið að fjalla um niðurstöðuna eftir að hún liggur fyrir. --- Þá hristir þingmaðurinn höfuðið. Ég vona að það lagist eitthvað í heilabúinu við það. (Gripið fram í.) Það er ekki verið að gefa Hæstarétti ráð þótt menn leyfi sér, eins og hv. þingmaður gerði hér, málshefjandi, að fjalla um niðurstöðuna. Það er ekkert verið að setja ofan í við Hæstarétt nema síður sé þó að hv. þm. segi að þingmenn hefðu kosið að efnisniðurstaða hefði fengist. Þingmaðurinn sagði að kannski þyrfti að breyta lagagrundvelli til að það væri hægt. Í þessu felst engin árás á Hæstarétt, ekki til. Mér finnst þetta afar ómaklegt gagnvart viðkomandi þingmanni og mér finnst reyndar líka mjög ómaklegt að reyna að nota þetta tækifæri til að reyna að koma höggi á ríkislögreglustjóraembættið því ég veit ekki annað en að hann hafi unnið að þessu máli af heiðarleika og festu.