Húsnæðismál

Þriðjudaginn 25. maí 2004, kl. 16:57:31 (8934)

2004-05-25 16:57:31# 130. lþ. 125.7 fundur 785. mál: #A húsnæðismál# (íbúðabréf) frv. 57/2004, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 130. lþ.

[16:57]

Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ætla nú að vera eins og biluð grammófónplata eins og einu sinni var sagt. Hv. þm.: Ég get ekki svarað skýrar heldur en ég gerði hér áðan. Okkar áætlanir munu verða lagðar fram um leið og niðurstaða Eftirlitsstofnunar EFTA liggur fyrir. Ég hef sagt það þrisvar í þessum stól í dag og ég segi það þá í fjórða sinn. (BjörgvS: Allt er þá þrennt er.)