Frsm. félmn. (Guðlaugur Þór Þórðarson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. Í stuttu máli má segja að þetta er mjög einfalt mál. Í rauninni þá les ég bara upp þá einu grein sem gert er ráð fyrir í lagatextanum, með leyfi forseta:
,,Við 1. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ákvæði laga þessara taka þó ekki til ÍLS-veðbréfa sem Íbúðalánasjóður veitir eða afgreiðir frá og með 1. júlí 2004.``
Nefndin fór yfir málið í tengslum við frv. sem hér hefur verið rætt og er samþykk því og leggur til að það verði samþykkt.
Undir það skrifa sá sem hér stendur, Guðjón Hjörleifsson, Guðjón Guðmundsson, Birkir J. Jónsson, Ísólfur Gylfi Pálmason, Jóhanna Sigurðardóttir, Helgi Hjörvar, Valdimar L. Friðriksson og Gunnar Örlygsson.
Eins og fram hefur komið þá er þetta fyrst og fremst tæknilegt mál sem ég held að þingheimur geti verið sammála um.