Jóhann Ársælsson:
Hæstv. forseti. Ég kveð mér hljóðs um störf þingsins vegna þess að mér er nóg boðið. Ég á sæti í sjútvn. þingsins og þar fór fram leikþáttur í gær sem er einstæður held ég í þingsögunni.
Við vorum boðaðir ekki sjaldnar en sex sinnum á fund í sjútvn. í gær og þegar hann hófst í hið sjötta sinn þurftum við að bíða í þrjú korter eftir þeirri niðurstöðu sem þar var kynnt. Þá höfðu stjórnarliðar setið yfir því að búa til nýtt frv. úr því afstyrmi sem hæstv. sjútvrh. hafði lagt fram. Niðurstaðan varð sú að það ætti að afleggja dagakerfi smábátanna þvert ofan í yfirlýsingar allra þeirra sem a.m.k. hafa látið eitthvað frá sér fara, gerðu fyrir kosningar og eftir kosningar með svardögum og fundum, bæði með sveitarstjórnarmönnum og þeim sem í þessum sjávarþorpum búa. Niðurstaðan er sem sagt sú að leggja skuli af dagakerfi smábátanna. Sjútvrh. hafði lagt fram frv. þar sem mönnum var gert gersamlega ómögulegt að halda áfram í dagakerfinu og átti greinilega ýmist að kaupa menn eða þvinga til þess að fara út úr þessu kerfi.
Hv. þm. Kristinn Gunnarsson hafði lýst því yfir margsinnis hér að hann ætlaði að sjá til þess að dagakerfið yrði áfram við lýði. Hér var borin upp tillaga í vetur um það að setja gólf í dagakerfið. Niðurstaðan varð sú að öll stjórnarandstaðan studdi það en yfirlýsingar hv. þm. Kristins Gunnarssonar voru í þá áttina að hann ætlaði sér að sjá til þess að gólf yrði í dagakerfinu. Nú er hann eins og Víga-Styrr, skiptir um lið í miðjum bardaga og gengur í lið með þeim sem hann hafði þó barist gegn eða þeirri niðurstöðu sem þeir vildu. Þetta er auðvitað alveg fráleitt og við ræðum betur á eftir um hvers konar stjórn hefur verið á þessu og undirbúningur undir þessi mál.