Dagný Jónsdóttir:
Herra forseti. Það virðist erfitt að rjúfa þann vítahring ofbeldisverka sem einkennir alla framvindu mála við botn Miðjarðarhafs. Innan raða beggja deiluaðila er að finna menn sem hafa boðorðið um auga fyrir auga og tönn fyrir tönn í heiðri. Á meðan hófsamari öfl meðal Palestínumanna og Ísraelsmanna ná ekki að setja öfgaöflunum stólinn fyrir dyrnar virðist þróunin sífellt horfa á verri veg. Því fylgir mikil vanmáttartilfinning að fylgjast með getuleysi alþjóðasamfélagsins til þess að stuðla að raunverulegri friðarþróun í þessum heimshluta.
Á undanförnum missirum hafa ísraelsk stjórnvöld beitt yfirburðamætti sínum til að reisa aðskilnaðarmúr á hernumdu landi, taka palestínska leiðtoga af lífi án dóms og laga og nú síðast til að ráðast inn í Rafa-flóttamannabúðirnar á Gaza-svæðinu þar sem tugir Palestínumanna hafa fallið og þúsundir misst heimili sín. Ljóst er að aðgerðir Ísraelsmanna eru ótvírætt brot á alþjóðalögum og alls ekki til þess fallnar að stuðla að friði og stöðugleika.
Íslensk stjórnvöld hafa á vettvangi allsherjarþings SÞ gagnrýnt byggingu aðskilnaðarmúrsins á hernumdu landi og þau hafa fordæmt aftökur án dóms og laga og árásir á flóttamannabúðir. Afstaða íslenskra stjórnvalda er í grundvallaratriðum óbreytt.
Eins og hæstv. utanrrh. sagði í máli sínu munu íslensk stjórnvöld áfram leggja sitt af mörkum til að leggja lóð á vogarskálar varanlegs friðar milli Ísraels- og Palestínumanna. Undir stjórn hæstv. utanrrh. hafa íslensk stjórnvöld nú tekið eindregnari afstöðu í fordæmingu sinni til aðgerða Ísraelsmanna en mörg hinna Norðurlanda. Ég fagna þeirri afstöðu.