Skipulag sjóbjörgunarmála

Fimmtudaginn 27. maí 2004, kl. 11:33:39 (9158)

2004-05-27 11:33:39# 130. lþ. 128.22 fundur 335. mál: #A skipulag sjóbjörgunarmála# þál. 26/130, Frsm. GHall
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur, 130. lþ.

[11:33]

Frsm. samgn. (Guðmundur Hallvarðsson):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nál. um till. til þál. um úttekt á skipulagi sjóbjörgunarmála.

Nefndin hefur fjallað um málið.

Í tillögunni er lagt til að gerð verði úttekt á skipulagi sjóbjörgunarmála og í greinargerð er sérstaklega bent á þörf fyrir akfæra vegarslóða að þeim stöðum á strönd Íslands sem teljast mjög varasamir. Mikilvægi þess að haft sé vakandi auga fyrir leiðum til að efla öryggi sjómanna er ótvírætt. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með breytingu. Tillögugreinin orðist svo:

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera úttekt á skipulagi sjóbjörgunarmála með það að markmiði að auðvelda og hraða björgunaraðgerðum þegar slys verða við erfiðar aðstæður.

Þuríður Backman sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hún samþykk áliti þessu. Kristinn H. Gunnarsson og Birkir J. Jónsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Þannig afgreitt úr samgöngunefnd 29. apríl 2004. Undir rita Guðmundur Hallvarðsson, Arnbjörg Sveinsdóttir, Einar Már Sigurðarson, Ásta R. Jóhannesdóttir, Jóhann Ársælsson og Guðjón A. Kristjánsson.