Þjóðgarðurinn á Þingvöllum

Fimmtudaginn 27. maí 2004, kl. 12:15:23 (9167)

2004-05-27 12:15:23# 130. lþ. 128.24 fundur 868. mál: #A þjóðgarðurinn á Þingvöllum# frv. 47/2004, ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur, 130. lþ.

[12:15]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Herra forseti. Þetta er fyrst og fremst táknræns eðlis af minni hálfu. Ég tel ekki að það að forsrh. skipi þessa tvo einstaklinga, formann og varaformann, skipti nokkru máli (BjarnB: Nei.) varðandi störf Þingvallanefndar eða framkvæmd mála þar að öðru leyti. Þetta er einvörðungu táknræn undirstrikun á þeim sterku og gömlu tengslum sem Alþingi hefur við þjóðgarðinn. Það er ekki neitt annað.