Rannveig Guðmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég er afskaplega ánægð að heyra að skýrslan sé loksins væntanleg og sé að koma úr prentun en ég harma, virðulegi forseti, að skýrslan komi á þeim tíma að ekki verði unnt að ræða hana á Alþingi. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að þinginu átti að ljúka 7. maí þannig að við eðlilegar aðstæður og miðað við það hvað henni seinkaði hefði það hvort eð er ekki náðst.
Ég ætlast auðvitað til þess að skýrslan verði kynnt með tilheyrandi hætti. Ég verð þá að treysta því að við getum tekið hana til umræðu á öðrum vettvangi og hún verði með fyrstu málum sem verða lögð fram í haust þannig að hv. Alþingi geti fjallað um hana og áttað sig á hvað þurfi að gera í málinu.