Frestun á fundum Alþingis

Fimmtudaginn 27. maí 2004, kl. 16:18:47 (9227)

2004-05-27 16:18:47# 130. lþ. 129.1 fundur 1005. mál: #A frestun á fundum Alþingis# þál. 27/130, forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 130. lþ.

[16:18]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef áður sagt, margoft, og notað mér þar málfrelsi mitt sem ég hlýt að ráða yfir að ég andmæli því og neita að byggja einhver svör hér á getsökum af þessu tagi í garð forseta Íslands. Mér finnst það algjörlega fyrir neðan allar hellur og mun ekki taka þátt í því. Ég hef margoft svarað þeirri spurningu þannig. Svar mitt liggur algjörlega fyrir.