Frsm. 2. minni hluta landbn. (Jón Bjarnason):
Frú forseti. Ég mæli fyrir nál. 2. minni hluta við þetta frv. um breytingu á lögum um rannsóknir í þágu atvinnuveganna.
Ég vísa til ræðu sem ég flutti hér við 1. umr. þar sem ég fagnaði því að verið væri að takast á við það verkefni að sameina Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.
Í greinargerð með frv. stendur, með leyfi forseta:
,,Frumvarpinu er ætlað að gera mögulega sameiningu Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri.`` --- Tekið er undir þetta markmið og jafnframt lögð áhersla á að mynduð verði ein samþætt stofnun undir nafni Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Það hefur verið skoðun mín, frú forseti, að það ætti að mynda eina stofnun undir nafni Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri.
Ég tel að lög um búnaðarfræðslu, nr. 57/1999, með síðari breytingum, rúmi allar lagalegar heimildir til að sameina Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og Rannsóknastofnun landbúnaðarins í eina stofnun.
Má þar vísa til 3. gr. í lögum um búnaðarfræðslu þar sem stendur, með leyfi forseta:
,,Með búnaðarfræðslu er átt við skipulegt nám og kennslu, rannsóknir, fræðslu og aðra leiðsögn er lýtur að vörslu, meðferð, ræktun og nytjun lands, annarra jarðargæða ...`` --- Í búfræðslulögum er sem sagt kveðið á um rannsóknarhlutverk skólanna.
Einnig er í III. kafla búfræðslulaganna vísað til rannsóknarhlutverksins en í 16. gr. stendur, með leyfi forseta:
,,Við menntastofnanir landbúnaðarins skulu stundaðar rannsóknir. Rannsóknirnar skulu skipulagðar með öðrum rannsóknum á sviði landbúnaðar- og landnýtingar.``
Síðan er í þessum III. kafla búfræðslulaganna frá 1999, lögum nr. 57, kveðið skýrt á um fjölþætt rannsóknarhlutverk menntastofnana landbúnaðarins sem voru Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, Hólaskóli og Garðyrkjuskóli ríkisins.
Einnig er kveðið sérstaklega á um rannsóknarhlutverk Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri í búfræðslulögunum þar sem vikið er sérstaklega að honum. Landbúnaðarháskólinn hefur því skýrt markað rannsóknarhlutverk samkvæmt þeim lögum og gæti starfsemi Rannsóknastofnunar landbúnaðarins fallið þar að. Gildir þar einu hvort um nýja stofnun væri að ræða, eins og verið er að leggja til hér, að stofnaður verði Landbúnaðarháskóli Íslands, eða að öll starfsemin yrði felld undir Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.
Í 1. gr. frv. sem við erum að fjalla um er lagt til að við 9. gr. laganna bætist svofellt ákvæði: ,,Á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands skulu stundaðar rannsóknir í þágu landbúnaðarins á sérstöku rannsóknasviði er hafi aðgreindan fjárhag frá annarri starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands.`` --- Í athugasemdum við greinina er aðgreiningin áréttuð, þ.e. aðgreining á rannsóknum og kennslu en þar stendur, með leyfi forseta: ,,Kveðið er á um að rannsóknasvið Landbúnaðarháskóla Íslands hafi sjálfstæðan fjárhag ...``
Rétt er að vekja athygli á því í þessu sambandi að nú þegar er verulegur hluti af starfsemi Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri tengdur og bundinn í rannsóknum þannig að erfitt er að sjá hvernig eigi þá að fara að reka sérstaklega rannsóknasvið og kennslusvið. Á t.d. að skipta upp rannsókna- og kennslusviði Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri sem nú er?
Frú forseti. Ég hef bent á allmörg atriði í þessu lagafrv. sem hér er verið að ræða um og um hugsanlega framkvæmd þeirra laga, ef frv. verður samþykkt, sem er vafa undirorpin. Það er ekki þar með sagt að ég sé mótfallinn þeim heldur hef ég bent á að kannski hefði þurft að vinna þetta betur og menn hefðu séð betur hver væri framtíðarsýnin í að vinna þetta saman.
Samkvæmt orðalagi frv. er verið að búa til tvær stofnanir á tveimur fjárlaganúmerum sem starfa samkvæmt tvennum lögum en eiga með einhverjum hætti að lúta sömu stjórn. Að mati 2. minni hluta er hér alrangt að staðið. Mikilvægt er að búa til eina samþætta stofnun sem starfar samkvæmt einum lögum og einu fjárlaganúmeri. Þessi tilhögun sem kemur fram í frv. og meiri hlutinn leggur til að verði samþykkt er því illskiljanleg og ekki séð hvernig hægt er að reka hinn nýja landbúnaðarháskóla sem eina stofnun ef frv. verður óbreytt að lögum. Benda má á að Háskóli Íslands starfar samkvæmt einum lögum þó að þar sé stór hluti bundinn í rannsóknum og Landbúnaðarháskóli Íslands hefur nákvæmlega sömu stöðu til að ná í utanaðkomandi rannsóknafjármagn hvort sem hann starfar eftir einum lögum eða tvennum. Hér er einungis að mínu mati verið að torvelda nauðsynlega en vandasama sameiningu þessara stofnana í eina.
Síðan var ákveðið að bæta Garðyrkjuskóla ríkisins inn í þennan sameiningarferil með þeim hætti sem lagt til í brtt. meiri hlutans. Að mati 2. minni hluta mun þetta á vissan hátt torvelda eða gera vandasamari ferilinn við sameiningu Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri sem átti jú að vera aðalmarkmið frv.
Samkvæmt 15. gr. frv. til laga um breytingu á lögum um búnaðarfræðslu skal setja reglur um verkaskiptingu milli skólanna í rannsóknum og kennslu. Frú forseti. Þar er einmitt sagt að landbrh. ákveði verkaskiptingu á milli skólanna. Sú verkaskipting hefur gilt varðandi bæði rannsóknir og kennslu og kveðið er á um það. Þannig hefur sérsvið Hólaskóla á Hólum í Hjaltadal verið markað. Samkvæmt frv. til laga um breytingu á lögum um rannsóknir í þágu atvinnuveganna mun rannsóknasvið Landbúnaðarháskóla Íslands hafa býsna sjálfstæða stöðu og á verkefnasviði þess eru talin öll þau sérverkefni sem Hólaskóli hefur haft á sinni forsjá til þessa, sbr. sérstaklega a- og b-lið 2. gr. frv.
Eins og sú grein er nú orðuð í frv. má túlka hana þannig að rannsóknasvið Landbúnaðarháskóla Íslands taki einnig til rannsókna sem nú eru á sérsviði Hólaskóla. Í nefndaráliti meiri hlutans er lögð áhersla á að áfram verði unnið að hugmyndum um frekari sameiningu þeirra stofnana sem starfa á sviði landbúnaðar við kennslu, rannsóknir og leiðbeiningarþjónustu. Hér er að mínu mati verið að senda ótímabær skilaboð til annarra stofnana sem ekki tengjast upphaflegu markmiði frv. sem var að sameina Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í eina stofnun. Með þessu orðalagi er sköpuð óvissa um stöðu og verkefni annarra stofnana landbúnaðarins sem ekki var markmið frv.
Að mati 2. minni hluta er markmiðið með frv. að sameina Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í eina samþætta stofnun sem starfi samkvæmt einum lögum, þ.e. lögum um búnaðarfræðslu, nr. 57/1999, með síðari breytingum, og eru lagðar fram af hálfu 2. minni hluta brtt. sem lúta að því markmiði.
Í umsögn fjárlagaskrifstofu fjmrn. um frv. til laga um breytingu á lögum um búnaðarfræðslu stendur: ,,Reiknað er með að öllu starfsfólki verði boðin sambærileg störf við Landbúnaðarháskóla Íslands.`` Athyglisvert er að orðið ,,sambærileg`` stendur ekki í ákvæði til bráðabirgða í frv.
Stéttarfélög þeirra sem starfa hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins lögðu áherslu á að þegar nýtt starf væri boðið hjá nýrri stofnun væri það á grundvelli þess að verið væri að bjóða sambærileg störf. Samkvæmt umsögn fjmrn. er gert ráð fyrir að kostnaður við þessar breytingar rúmist innan fjárlagaheimildar stofnunarinnar. Viðbúið er að allmargir starfsmenn muni óska eftir að fara á biðlaun og mun þá þurfa að ráða nýja starfsmenn í þeirra stað. Reynsla af viðlíka aðgerðum um sameiningu og flutning stofnana hefur sýnt að þær geta verið mjög kostnaðarsamar. Óbreytt fjármagn og aukinn kostnaður vegna sameiningarinnar þýðir beinan niðurskurð á starfseminni og verður að leiðrétta þessa umsögn fjmrn. til þess að sú verði ekki raunin.
Frú forseti. Ég hef hér rakið í nál. mínu hvernig ég hefði talið rétt að standa að þessu máli. Nú er valin önnur leið, að sameina þetta að hluta, að rannsóknasviðið sem hefur heyrt undir Rannsóknastofnun landbúnaðarins verði áfram samkvæmt lögum um Rannsóknastofnun atvinnuveganna. Hins vegar fagna ég þeirri áherslu meiri hlutans í nál. sínu að reynt verði að láta stofnanirnar starfa samkvæmt einni reglugerð. Ég tel að meiri hlutinn sé þar að gefa vísbendingu um einmitt það.
Frú forseti. Ég kem nánar að þessum málum öllum svo frekar í nál. með því máli sem er á dagskrá hér á eftir um breytingar á lögum um búnaðarfræðslu. Þar mun ég gera ítarlegri grein fyrir skoðunum mínum á því hvernig þetta mætti best fara og leyfi ég mér að vísa til þess sem ég kem þar að.
Í lok umfjöllunar á þessu máli vil ég bara segja þetta, frú forseti: Verði raunin sú að Rannsóknastofnun landbúnaðarins verði lögð niður eins og frv. gerir ráð fyrir vil ég sérstaklega færa starfsfólki öllu þakkir fyrir metnaðarfullt og óeigingjarnt starf í þágu íslensks landbúnaðar og landbúnaðarvísinda um mörg ár. Því fylgja jafnframt árnaðaróskir á nýjum vettvangi hver sem hann verður hjá hverjum og einum.