Jöfnun flutningskostnaðar á sementi

Föstudaginn 28. maí 2004, kl. 12:49:02 (9365)

2004-05-28 12:49:02# 130. lþ. 130.31 fundur 690. mál: #A jöfnun flutningskostnaðar á sementi# (afnám laganna) frv. 63/2004, Frsm. KHG
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur, 130. lþ.

[12:49]

Frsm. iðnn. (Kristinn H. Gunnarsson):

Frú forseti. Iðnn. fékk til umfjöllunar frv. til laga um afnám laga nr. 62/1973, um jöfnun flutningskostnaðar á sementi, með síðari breytingum.

Nefndin hefur lokið umfjöllun um málið og skilað af sér svohljóðandi nál. á þskj. 1752, með leyfi forseta:

,,Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Pétur Örn Sverrisson frá iðnaðarráðuneyti, Þorstein Víglundsson frá BM Vallá ehf., Hannes Sigurðsson frá Steypustöðinni, Bjarna Óskar Halldórsson frá Aalborg Portland, Gylfa Þórðarson frá Sementsverksmiðjunni, Eyvind G. Gunnarsson, Gunnar G. Þorsteinsson og Drífu Hjartardóttur frá flutningsjöfnunarsjóði sements og Gunnlaug Kristinsson frá PWC. Umsagnir bárust frá Samtökum iðnaðarins, Bændasamtökum Íslands, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum atvinnulífsins, Alþýðusambandi Íslands, Byggðastofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Eyþingi -- Sambandi sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, Sementsverksmiðjunni, flutningsjöfnunarsjóði og BM Vallá ehf.

Með frumvarpinu er lagt til að jöfnun flutningskostnaðar á sementi verði afnumin frá og með 1. júní 2004, flutningsjöfnunarsjóður sements verði lagður niður og lögin felld úr gildi. Við athugun nefndarinnar kom skýrt fram að sjóðurinn hefur starfað samkvæmt markmiðum laganna og skilað hlutverki sínu með ágætum en flutningskostnaður hefur lækkað mikið síðustu ár og er samkeppni meira ríkjandi þáttur í atvinnulífinu en áður og því hafa forsendur breyst.

Tilgangur laganna var að jafna byggingarkostnað og búsetuskilyrði í landinu og var sementskostnaður þar afgerandi þáttur. Sementskostnaður er nú einungis 2--3% af byggingarkostnaði steinsteyptra húsa og skiptir því flutningsjöfnunin mun minna máli en áður. Auk þess færist í vöxt að söluaðilar selji vörur á sama verði á útsölustöðum sínum um land allt. Þannig fer fram verðjöfnun innan fyrirtækja. Þá felur jöfnun flutningskostnaðar á eina tegund byggingarefnis en ekki aðrar í sér mismunun.

Gjaldið er lagt á hvert tonn af seldu sementi og lagt í flutningsjöfnunarsjóð sem greiðir flutningskostnað frá framleiðslustað eða innflutningshöfn til þeirra verslunarstaða sem jöfnunin nær til. Upplýst var á fundum nefndarinnar að kerfið hefði virkað sérstaklega hvetjandi á flutning á markaðssvæði höfuðborgarsvæðisins og aukið flutningskostnað sem hafi leitt til hærra verðs á sementi. Breytingarnar munu hvetja til hagræðingar í flutningum og þar með verðlækkunar sem vegur á móti hugsanlegri verðhækkun sements.

Nefndin telur eðlilegt að jafna flutningskostnað og þar með búsetuskilyrði í landinu með almennari aðgerðum og leggur því til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Kristján L. Möller, Einar Karl Haraldsson og Björgvin G. Sigurðsson skrifa undir álitið með fyrirvara.

Sigurjón Þórðarson sat fundinn en stendur ekki að álitinu.

Steingrímur J. Sigfússon sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi og er hann andvígur álitinu.``

Ég vil geta þess að vegna þess að nú er skammt til 1. júní, en lagt er til í frv. að lögin öðlist gildi þá, verður það skoðað á milli 2. og 3. umr. hvort nauðsynlegt er að flytja breytingartillögu um gildistöku laganna og ef talin er þörf á að breyta gildistökunni af tæknilegum ástæðum vegna þess að svo skammt er til 1. júní mun ég flytja tillögu um það en annars ekki.

Ég vil einnig geta þess að fram kom yfirlýsing frá Sementsverksmiðjunni sem iðnn. fékk eftir að málið hafði verið afgreitt þar sem fyrirtækið lýsti því yfir að það mundi ekki hækka verð á sementi frá sér á útsölustöðum sínum og ég hygg að það staðfesti mat iðnn. sem fram kemur í nefndarálitinu.