Jöfnun flutningskostnaðar á sementi

Föstudaginn 28. maí 2004, kl. 13:11:14 (9369)

2004-05-28 13:11:14# 130. lþ. 130.31 fundur 690. mál: #A jöfnun flutningskostnaðar á sementi# (afnám laganna) frv. 63/2004, SigurjÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur, 130. lþ.

[13:11]

Sigurjón Þórðarson (andsvar):

Herra forseti. Nú stangast þessar upplýsingar frá Sementsverksmiðjunni á við það sem fram kom hjá formanni flutningsjöfnunarsjóðs sements en þar er talað um gífurlega mikla hækkun. Þegar svo er vil ég spyrja hv. þm. hvort hann telji ekki eðlilegt að áður en málið verður afgreitt fáum við niðurstöðu í það mál og einhverjar skýringar á því hvers vegna upplýsingarnar stangast svona á. Einnig vil ég fá svör við því hvort ekki sé rétt að bíða eftir almennum jöfnunaraðgerðum á flutninga áður en við afleggjum þá litlu flutningsjöfnun sem fyrir hendi er í landinu.