Varamaður

Miðvikudaginn 21. júlí 2004, kl. 13:31:40 (9516)

2004-07-21 13:31:40# 130. lþ. 136.94 fundur 644#B varamaður#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 136. fundur, 130. lþ.

[13:31]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem Davíð Oddsson forsætisráðherra, 2. þm. Reykv. n., dvelst í sjúkrahúsi vegna veikinda og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Sjálfstfl. í Reykv. n., Ásta Möller, taki sæti hans á Alþingi á meðan.

Virðingarfyllst,

Einar K. Guðfinnsson,

formaður þingflokks sjálfstæðismanna.``

Ásta Möller hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa.