Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég tel líka að halda eigi uppi heiðri þeirra manna sem sömdu stjórnarskrána. En hitt er annað mál að fram kemur í umræðum um þetta atriði á þingi á þeim tíma að menn voru einfaldlega ekki sammála. Ég vil vitna í atkvæðaskýringu Sigfúsar Sigurhjartarsonar, með leyfi forseta.
Hann segir:
,,Herra forseti. Þar sem þegar hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að endurskoða stjórnarskrána, og ég vil ekki að málið verði hrakið milli deilda, þá greiði ég atkvæði á móti öllum brtt.``
Og Jón Pálmason, af því að vitnað hefur verið í hann hér, segir:
,,Herra forseti. Þar sem gert er ráð fyrir að þessi stjórnarskrá muni standa stuttan tíma vil ég ekki, að minni tillögu felldri, að málið verði tafið meir og segi því nei.``
Allar þessar umræður benda til þess að þarna vildu menn ljúka málinu að sinni og taka það síðan upp aftur. Búið var að gera ráðstafanir til þess að farið yrði aftur í gegnum stjórnarskrána.
Og þá hefði líka verið skemmtilegt, hæstv. forseti, ef hv. þm. hefði vitnað í Eystein Jónsson sem var að svara Birni Þórðarsyni.