Jónína Bjartmarz (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson heldur því fram að ég hafi talað um stjórnskipulegan vafa. Það gerði ég aldrei. Ég sagði að uppi væri stjórnskipulegur ágreiningur, um stjórnskipulegar heimildir handhafa ríkisvaldsins og út á það gekk umfjöllun allshn. um málið.
Í ræðu minni áðan talaði ég um stjórnskipulegan ágreining sem menn hefðu leitast við að leita lausna á með þessari leið. Nál. meiri hlutans gengur út á að meiri hlutinn telji að vísu að hin leiðin sé fær og hún standist, enda sögðu sumir lögfræðingar að þeir teldu að það stæðist stjórnarskrána að setja lög í kjölfarið.
En það var mikill ágreiningur. Ég gerði áðan grein fyrir mismunandi leiðum og rökstuðningi. Niðurstaðan varð sú, vegna þessa ágreinings um stjórnskipulegar heimildir, að þessi leið var farin, að fella einungis lögin niður og leggja það til með brtt. en setja ekki ný lög samhliða.