Frsm. meiri hluta allshn. (Bjarni Benediktsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Hafi hv. þm. hlustað eftir mínum orðum, eins og hann lætur vera, hefði hann átt að taka eftir því að í nefndarálitinu segir, sem ég hef ítrekað bent á í ræðustól, að meiri hluti nefndarinnar telji heimilt að setja ný lög samhliða því að fella niður lög frá liðnu vori. Þetta segir orðrétt í nefndaráliti meiri hlutans. Síðan er tiltekin ein skýring þess að nefndin mælir ekki með því að ný lög verði sett um efnið að þessu sinni, þ.e. að stjórnskipulegur vafi hafi verið um málið. Ég geri engan stóran mun á því hvort í nefndarálitinu segir stjórnskipulegur vafi eða stjórnskipulegur ágreiningur. Aðrir kunna að leggja meira upp úr því orðalagi en hv. þm. á að vera það deginum ljósara að meiri hluti nefndarinnar taldi að leiðin sem lagt var til að fara væri fær.
Ástæða þess að meiri hluti nefndarinnar leggur ekki til að sett verði ný lög að svo komnu máli er sú að engin sátt hefur tekist um það, m.a. vegna þess að stjórnarandstaðan hefur ekki á nokkru stigi málsins viljað taka þátt í efnislegri umræðu. Það hefur ekki einu sinni hefur komið að gefnum hvaða breytingum á frv., eins og það hefur legið fyrir á þinginu, stjórnarandstaðan gæti fellt sig við að málið yrði afgreitt.