Þingfrestun

Fimmtudaginn 22. júlí 2004, kl. 12:02:48 (9648)

2004-07-22 12:02:48# 130. lþ. 138.94 fundur 648#B þingfrestun#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 138. fundur, 130. lþ.

[12:02]

Forseti (Halldór Blöndal):

Nú lýkur þessum sumarfundum Alþingis sem staðið hafa frá 5. júlí til 22. júlí. Ég hygg að þegar frá líður verði þessir sumarfundir þingmönnum minnisstæðir fyrir margra hluta sakir. Aðstæður hér í þinghúsinu hafa líka verið óvenjulegar og vil ég af þeim sökum nota tækifærið til að þakka þingmönnum þolinmæði og tillitssemi við þingstörfin þessa daga. Jafnframt þakka ég starfsfólki sem sýnt hefur samviskusemi og lipurð þessa sumardaga eins og jafnan.