Embætti prests á Bíldudal

Mánudaginn 06. október 2003, kl. 15:29:29 (164)

2003-10-06 15:29:29# 130. lþ. 4.1 fundur 48#B embætti prests á Bíldudal# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 130. lþ.

[15:29]

Dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Eins og ég sagði er sjálfsagt að afla þessara upplýsinga og að sjálfsögðu getur fjárln. aflað þessara upplýsinga.

Ég vil aðeins vegna þessara umræðna hér þar sem ég er beðin um svör vegna kirkjunnar minna á að hv. fyrirspyrjandi er flutningsmaður að frv. til laga sem vill skilja algjörlega á milli ríkis og kirkju þannig ég hélt að hann hefði kynnt sér hvernig þessari skipan væri háttað.