Magnús Stefánsson:
Hæstv. forseti. Hér er til umræðu frv. til fjáraukalaga fyrir árið 2003. Í umræðum um frv. til fjárlaga fyrir árið 2004 var allítarlega fjallað um ástand og horfur í efnahagsmálum almennt og mikilvægan þátt ríkisfjármála í hagstjórninni. Ég ætla ekki í þessari umræðu að fara yfir það aftur en vísa í þá umræðu sem fram fór um fjárlagafrv. sjálft.
Samkvæmt þessu frv. er gert ráð fyrir að tekjuafgangur ríkissjóðs árið 2003 verði 6,2 milljarðar kr., þ.e. rúmlega 0,8% af landsframleiðslu, en ekki 9,4 milljarðar eins og samþykkt fjárlög fyrir árið 2003 og áður samþykkt fjáraukalög höfðu gert ráð fyrir. Fyrir þessari breytingu er gerð grein í frv. og hefur hæstv. fjmrh. farið yfir hana í einstökum liðum. Samt sem áður er um góðan afgang að ræða, svipaðan og gert er ráð fyrir árið 2004 samkvæmt frv. til fjárlaga sem fyrir liggur. Hér er því um að ræða gott framlag til hagstjórnarinnar af hálfu ríkissjóðs og sýnir góða stöðu ríkissjóðs.
Herra forseti. Almennt ríkir það sjónarmið að innihald fjáraukalaga eigi að vera hóflegt. Ég er þeirrar skoðunar að frv. til fjáraukalaga eigi að vera sem minnst að umfangi og ekki um að ræða aðrar fjárheimildir en þær sem vart þola bið eins og raunar er kveðið á um í lögum um fjárreiður ríkissjóðs. En eins og ætíð er eðlilegt að skiptar skoðanir séu um innihald frv., hversu brýnt og eðlilegt kann að vera að leggja til þær fjárheimildir sem frv. gerir ráð fyrir. Það er mikilvægt að framkvæmdarvaldið á hverjum tíma umgangist heimildir til fjáraukalaga í lögum um fjárreiður ríkisins með hófsemd.
Í þessari umræðu ætla ég ekki að fara yfir einstök atriði frv. né leggja dóm á það sem í því felst en mun taka þátt í að fjalla um það í fjárln. og fara nánar yfir það við 2. umr.
Ég vil hins vegar, herra forseti, ítreka það sem ég kom inn á í umræðum um frv. til fjárlaga fyrir árið 2004. Fjárln. á að taka virkan þátt í að fylgja því eftir að fjárlög haldi eftir að þau eru samþykkt og veita framkvæmdarvaldinu ákveðið aðhald í þeim efnum. Það er mikilvægt hlutverk sem miðar að því að sem best verði haldið um fjárhag ríkissjóðs og þannig verði fylgt eftir göfugum markmiðum sem tengjast efnahagsstjórninni almennt. En fjárln. er þegar byrjuð að fjalla um þetta frv. Ég vænti þess að vel takist til við að ljúka umfjöllun um frv. á þann hátt sem starfsáætlun Alþingis gerir ráð fyrir.
Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili en mun ræða um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 2003 við 2. umr.