Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst ekki alveg að fullu skiljanlegt hvernig gengi á erlendri mynt er blandað inn í þetta. Gengið hefur sveiflast mjög til allt frá fyrsta degi þegar Landsbankinn var boðinn til sölu og síðan þegar skrifað var undir einhverja samninga og ekki er sama gengi í dag. Á hvaða gengi var þá bankinn seldur? Hver var gengisvísitalan sem á að gilda um sölu bankans? Þetta er innlend eign og mér finnst að það væri nú eðlilegast að selja innlendar eignir til innlendra aðila í íslenskum krónum. (Gripið fram í: Voru þetta mútur eða hvað?) Hefði það nú ekki verið eðlilegast að greiða þetta í íslenskum krónum? Þetta er íslensk eign og meira að segja óskabarn þjóðarinnar er komið inn í þetta ferli allt saman sem ein alíslenskasta eignin, hún er komin inn í þetta ferli. Hefði ekki verið eðlilegt að þessi viðskipti færu fram í íslenskum krónum? En á hvaða gengi var þá bankinn seldur? Hver var gengisvísitalan sem miðað er við? (Gripið fram í: Af hverju fékk Jón ekki að kaupa?) Af hverju fengum við Össur ekki að kaupa til dæmis? Við sem hefðum gjarnan viljað fá að eiga þetta óskabarn okkar.
Og á hvaða stigi er þá þessi sala nú? Hvað eru líkur til að verði miklar afskriftir af því kaupverði sem að var stefnt eða skrifað undir í byrjun? Kemur ekki inn í þessa mynd sú gríðarlega eignaaukning eða hækkun á hlutabréfum sem hefur orðið í þessum eignum núna á síðustu vikum, mánuðum og missirum, því salan er ekki um garð gengin. Kemur hún þá ekkert inn í þetta dæmi þar sem eignin hefur reynst að því er virðist á ýmsan hátt mun verðmeiri en annars var talið í þeirri skiptimynt sem henni hefur verið beitt við að sölsa undir sig eignir þjóðarinnar?