Mörður Árnason:
Hæstv. forseti. Umferð hjólandi manna hefur aukist mjög á undanförnum árum, á kannski áratug, bæði erlendra ferðamanna en ekki síður Íslendinga sem hafa í síauknum mæli tekið upp þessa aðferð, þessa umhverfisvænu og heilbrigðisaukandi aðferð við samgöngur. Það hefur auðvitað fyrst og fremst verið innan bæjar en einnig á milli staða, og það hefur farið hönd í hönd við m.a. miklar framkvæmdir, lofsverðar þó ekki séu nægilegar, hér í Reykjavík á valdatíma Reykjavíkurlistans sem hefur tekið þetta mál sérstökum tökum.
Ég fagna því að hæstv. samgrh. skuli vera kominn í slóðina. En þetta gengur seint og ákvarðanir eru ekki teknar þó að brautin að öðru leyti sé að verða klár. Ég vænti þess að hæstv. samgrh. geti gefið skýrari svör við því hér á eftir hver er hans vilji t.d. um slitlagið sem á að setja á þennan fyrirhugaða stíg eftir gamla veginum.