Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Mér þykir leitt ef búningurinn á frv., greinargerð þess og kostnaðarumsögn eru ekki þingmanninum að skapi. Mér þykir leitt ef hann telur sig ekki hafa fengið þær upplýsingar sem hann taldi sig eiga rétt á í þeim gögnum sem fylgja málinu en ég hlýt að benda á að upplýsingar um tekjutap af þessu máli er að finna m.a. í fjárlagafrv. þar sem getið er um þann ríflega hálfa milljarð sem gæti verið í húfi. En eitt verð ég að leiðrétta strax sem fram kom í máli þingmannsins. Hann hélt því fram, sennilega vegna misskilnings, að það væri verið að leggja auknar byrðar á launagreiðendur með þessari breytingu. Það er ekki svo. Það eina sem gerist er að þegar launagreiðandinn hefur tekið tryggingagjaldið til hliðar hættir hann að leggja þann hluta sem um er að tefla hér inn á reikning launamannsins en skilar honum í staðinn með öðrum hlutum tryggingagjaldsins í ríkissjóð. Það er ekki dregið meira af launagreiðandanum sjálfum, það er ekki um það að ræða að gjöldin sem hann þarf að borga hækki við þetta. Þetta fannst mér nauðsynlegt að kæmi strax fram. Að öðru leyti mun ég svara þingmanninum síðar í umræðunni.