Tekjuskattur og eignarskattur

Fimmtudaginn 09. október 2003, kl. 12:34:35 (383)

2003-10-09 12:34:35# 130. lþ. 8.3 fundur 88. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (sérstakur tekjuskattur, viðmiðunarfjárhæðir o.fl.) frv., HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 8. fundur, 130. lþ.

[12:34]

Halldór Blöndal (andsvar):

Frú forseti. Ég virðist nú vita betur en hv. þm. hver hefur verið afstaða Samf. fram að þessu til hátekjuskatts eftir hans ummælum hér áðan. En ég hygg á hinn bóginn að hv. þm. reyni enn að koma því til skila til þeirra sem þannig vilja hugsa að nú sé Samfylkingin á móti hátekjuskatti. Það eru kannski áhrif frá hv. þm. inn í þingflokk Samf. að hún hefur breytt svo um skoðun.