Geðheilbrigðisþjónusta við börn og unglinga

Þriðjudaginn 14. október 2003, kl. 13:42:36 (500)

2003-10-14 13:42:36# 130. lþ. 10.96 fundur 87#B geðheilbrigðisþjónusta við börn og unglinga# (umræður utan dagskrár), heilbrrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 10. fundur, 130. lþ.

[13:42]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. 10. þm. Norðaust. fyrir að hreyfa hér máli sem við ræddum nokkuð í liðinni viku, þ.e. geðheilbrigðismálin. Ég lét þau orð falla á alþjóðageðheilbrigðisdeginum að geðheilbrigðismál væru erfiðasti málaflokkurinn fyrir heilbrrh., að glíma við. Að glíma við þann vanda er ekki ólíkt því að takast á við ósýnilegan skugga sem öllum að óvörum tekur á sig myndir sem enginn býst við eða getur séð fyrir. Ósýnilegan vegna þess að geðsjúkdómar voru um langan aldur feimnismál, einkamál, persónuleg mál einstaklinga og í besta falli fjölskyldna þeirra.

Virðulegi forseti. Hv. 10. þm. Norðaust. spyr mig fimm spurninga og ég vona að hún virði það við mig þótt ég reyni að svara þeim saman. Það er spurt um endurskoðun laga um heilbrigðisþjónustu og hugsanlegar breytingar á sviði geðheilbrigðisþjónustu í því sambandi. Nýlega var gengið frá skipun nefndarinnar til að endurskoða heilbrigðisþjónustulögin. Í skipunarbréfi hennar er ekki tekið fram að tilteknar sérgreinar verði ræddar sérstaklega, en það verður auðvitað svo í framkvæmd. Geðheilbrigðisþjónustan er þar ekki undanskilin. Það er flókið mál að endurskoða jafnviðamikinn lagabálk og heilbrigðisþjónustulögin og sú leið vafalaust torfarin. Ég geri því ekki ráð fyrir að þeirri endurskoðun ljúki innan þess tíma sem ég tel að við höfum til þess að endurskipuleggja geðheilbrigðisþjónustu við tiltekna hópa sjúklinga. Umbætur í geðheilbrigðisþjónustunni verða með öðrum orðum að ganga fyrir.

Það er spurt hvernig megi koma á virkara samráði heilsugæslu, skóla og félagsþjónustu til að sinna betur börnum og ungmennum með tilfinninga- og geðraskanir. Ég tilkynnti á geðheilbrigðisdaginn fyrir helgi að ég hefði ákveðið að ráða sérstaka verkefnisstjóra til að sjá til þess, svo fljótt sem verða má, að leiða saman fulltrúa í heilbrigðisþjónustu, félags- og menntmrn. og sveitarfélögin í landinu til að koma í einn farveg þjónustunni sem börn og ungmenni með þroska-, hegðunar- og geðraskanir þurfa að fá. Ástæðan fyrir því að ég tel nauðsynlegt að skoða þetta samspil þjónustuþáttanna hratt og vel eru m.a. samtöl mín við aðstandendur barna og ungmenna með tilfinninga- og geðraskanir og þær kennitölur sem ég hef fyrir framan mig um það sem við höfum verið að gera á undanförnum árum.

Hér komum við kannski að síðustu spurningu þingmannsins um aukin framlög og aukin meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni sem þurfa á geðheilbrigðisþjónustu að halda. Þegar ég tala um kennitölur þá er ég m.a. að tala um þetta. Umönnunarbörnum í þeim hópi sem við erum að tala um hefur fjölgað á nokkrum árum úr 700 í 1.700 hjá Tryggingastofnun ríkisins. Á síðustu þremur árum hafa heimsóknir barna til barnageðlækna á stofu rúmlega tvöfaldast, þær voru 1.600 árið 2000 en eru nú 3.950 samkvæmt staðtölum Tryggingastofnunar ríkisins. Greiðslueiningar á komu til geðlækna eru nú um 14% fleiri en fyrir nokkrum árum samkvæmt fjölda afgreiddra mála á BUGL, hafa því tvöfaldast á sex árum. Tilvísunum hefur fjölgað úr 300 í 500 á sama tímabili. Á fimm árum fjölgaði stöðugildum lækna á BUGL um níu og stöðugildum hjúkrunarfræðinga fjölgaði um tólf. Samtals fjölgar stöðugildum þessara starfsstétta úr 37 í 58 á fimm árum og geðlæknum á samningi hjá TR hefur til að mynda fjölgað frá 1999, en þá voru þeir samtals 39 en voru í fyrra 43.

Ég bið menn að misskilja ekki eða snúa út úr því sem ég hef sagt hér. Ég er ekki að halda því fram að nóg sé að gert. Mér er fullkunnugt um að þjónustuna við suma hópa þarf að bæta verulega. Samtöl mín við aðstandendur hafa kennt mér það og þess vegna hef ég ákveðið að skipa sérstakan verkefnisstjóra, sem ég gat um áðan, til að freista þess að koma þjónustunni í einn öflugan farveg, en mér ber sem heilbrigðisráðherra og alþingismanni að skoða gaumgæfilega hvernig á því stendur að tilteknir hópar fá ekki nægilega fljótt þjónustuna sem þeir þurfa þó að stórauknu fé hafi verið varið til málaflokksins.

Virðulegi forseti. Við erum alltaf að tala um viðbrögð við afleiðingum einhvers sem gerist. En hverjar eru ástæðurnar fyrir þessari ríku og að því er virðist vaxandi þörf fyrir geðheilbrigðisþjónustu hér á landi? Ég vona að við fáum haldbetri svör við spurningunum en við höfum nú, þegar heilbrigðisyfirvöld, félagsmálayfirvöld, yfirvöld menntamála og sveitarfélaga fara að tala saman eins og ég hef lagt grunninn að.