Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir það með öðrum sem hér hafa talað og þakka frummælanda fyrir þessa fsp. til hæstv. félmrh., en ég verð að láta það koma fram að mér fannst svarið heldur rýrt í roðinu frá hæstv. ráðherranum. Ég hjó eftir því að í svarinu gerði hann grein fyrir starfshóp sem starfar á milli ráðuneyta og í þessum starfshópi sitja einvörðungu embættismenn, þ.e. það er ekki pólitísk forusta í starfshópnum önnur en sú sem er í ráðherrunum sjálfum. Það segir sig sjálft að þegar verið er að vinna slíka vinnu, verða embættismennirnir að hafa einhverja leiðsögn um það í hvaða átt þeir eigi að vinna, hver stefna ráðherra sem þeir eru fulltrúar fyrir í starfshópnum er. Mér hefði þótt eðlilegt að hæstv. ráðherrann gerði okkur grein fyrir því hver væru hans helstu áhyggjuefni í þessum málum.
Ég vil að það komi hér fram að ég held að þessi starfshópur eigi ekki síst að horfa til barna og þeirra efnalegu og félagslegu fátæktar sem þar er til staðar.