Fyrirspyrjandi (Þórunn Sveinbjarnardóttir):
Virðulegi forseti. Um mitt sumar bárust fréttir af því að mjög hefði gengið á fé Fæðingarorlofssjóðs. Ef fram heldur sem horfir gæti eigið fé sjóðsins orðið upp urið innan tveggja ára eða um mitt ár 2005.
Þegar ný lög um fæðingarorlof voru samþykkt vorið 2000 var þingheimur á einu máli um að í þeim fælist eitt mesta framfaraspor á sviði jafnréttisbaráttunnar sem stigið hefði verið hér á landi. Sjálfstæður réttur feðra til fæðingarorlofs sætti tíðindum og til Íslands hefur verið litið sem fyrirmyndar í þessum efnum. Breytingunni hefur svo sannarlega verið tekið með opnum örmum af nýbökuðum foreldrum, ekki síst nýbökuðum feðrum sem hafa nýtt sér sinn sjálfstæða rétt í meiri mæli en flesta grunaði vorið 2000.
Lögin um fæðingarorlof gengu að fullu í gildi um síðustu áramót. Nokkur reynsla er því komin á þau. Þó er langt í frá að hægt sé að kveða upp úr um áhrif þeirra, ekki síst áhrif þeirra á íslenskan vinnumarkað til langframa. Markmið laganna er, eins og við vitum, að tryggja barni samvistir við bæði föður og móður á fyrstu missirum ævi sinnar. En áhrif þessara breytinga á ólíka stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði eru án nokkurs vafa mjög mikil, jafnvel byltingarkennd.
Nú skilst mér að hæstv. félmrh. hafi sett af stað vinnu í ráðuneyti sínu við að endurskoða fæðingarorlofslögin. Það væri því fróðlegt að heyra, frú forseti, hvaða leiðir er verið að skoða í þeirri vinnu og hvort einhverjar breytingar séu í undirbúningi í ráðuneytinu.
Ég er þeirrar skoðunar að fara eigi mjög varlega í breytingar á fæðingarorlofslögunum. Margir hafa séð ofsjónum yfir háum greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði en það er hollt að hafa í huga, frú forseti, að þær endurspegla einungis launamun kynjanna á vinnumarkaði, bæði launabilið og kynbundinn mun. Greiðslurnar hafa með vissum hætti svipt leyndarhulunni af ólíkri stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði, að svo miklu leyti sem sá munur tekur til launagreiðslna.
Með þetta í huga vil ég inna hæstv. félmrh. eftir því hvernig hann hyggst bregðast við fjárþurrð Fæðingarorlofssjóðs. Hér er um gífurlega hagsmuni að tefla, hagsmuni íslenskra barna, foreldra þeirra, stöðu þeirra á vinnumarkaði og hagsmuni heimilanna.