Kostnaður sveitarfélaga vegna atvinnuleysis

Miðvikudaginn 15. október 2003, kl. 15:22:52 (622)

2003-10-15 15:22:52# 130. lþ. 11.8 fundur 113. mál: #A kostnaður sveitarfélaga vegna atvinnuleysis# fsp. (til munnl.) frá félmrh., félmrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur, 130. lþ.

[15:22]

Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon):

Virðulegi forseti. Ég vil í lokin rétt aðeins ítreka að þær upplýsingar sem hér var spurt um liggja ekki fyrir. En ég tel eins og áður kom fram ríka ástæðu til þess að taka þær saman og lýsi vilja mínum til þess.

Ég vil enn fremur ítreka að til stendur að taka til endurskoðunar lögin um atvinnuleysistryggingar í samráði við aðila vinnumarkaðar og fleiri.